Leiðandi bílaframleiðandi í 70 ár.

KGM markar nýtt upphaf á íslenskum bílamarkaði en á þessu ári breytist nafn hins gamalgróna framleiðanda SsangYong í KGM. SsangYong hefur verið leiðandi bílaframleiðandi í  70 ár og boðið upp á öfluga og vel útbúna bíla á góðum kjörum.

KGM mun halda áfram að bjóða upp á fjölbreytt úrval jeppa og jepplinga sem og kynna nýja og glæsilega línu 100% rafbíla á næstu misserum.

Rexton – Jeppi fyrir kröfuharða

Það segir töluvert þegar eitt virtasta fagrit á bílamarkaðnum í dag, 4×4 Magazine, velur Rexton sem bíl ársins fram yfir aðra sambærilega jeppa. sú var einmitt raunin þegar nýjastsa kynslóð Rexton var kynnt til leiks. Samkeppnin í þessum flokki var ekki af verri endanum en þeir sem komu einnig til greina voru m.a. Toyota Land Cruiser og Mercedes Benz G-Class. Niðurstaða dómnefndar var skýr; KGM Rexton skarar framúr með hæstu einkunn bæði sem besti jeppinn og bestu kaupin, og hlaut því titilinn 4×4 Jeppi ársins það árið. Komdu og reynslu aktu KGM Rexton, 7 manna lúxusjeppi frá KGM.

Nýr Torres EVX – 100% rafmagnaður

Torres EVX er stór, rúmgóður og 100% rafmagnaður með að allt að 462 km drægni. Djörf og framsækin hönnun, fyrsta flokks innanrými ásamt nýrri, háþróaðri rafhlöðutækni sem ábyrgir rafmagnað ferðlag í eina milljón kílómetra.

Forpantaðu í dag – fyrstu bílar eru væntanlegir í haust.

Korando fyrir íslenskar aðstæður

Það er ótrúlega margt sem mælir með fjórhjóladrifnum Korando frá KGM. Hann státar af framsæknu útliti jafnt að utan sem innan. Kraftmikill Korando slær dýrari jeppum við á ótal sviðum, hann er hlaðinn búnaði og tækni og hentar einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður.

Komdu og reynsluaktu Korando.

Tivoli

KGM Tivoli er einn með öllu. Glæsilega hannaður, ríkulega búinn, sparneytinn, fjórhjóladrifinn og lipur í akstri. Tivoli er fyrir þá sem kjósa minni og stílhreina bíla, gegnheil gæði, gott aðgengi og frábært verð.

Kostir Tivoli eru ótvíræðir við allar aðstæður.

Vertu velkomin(n) í reynsluakstur, söluráðgjafar okkar taka vel á móti þér.