Nýr SsangYong Rexton, sigurvegari jeppanna.

Panta reynsluakstur
Sækja verðlista
Sækja bækling
Frumsýningar bæklingur

„Ökutæki sem er hlaðið búnaði, meiri búnaði en hægt er að telja upp og ég hef það á tilfinningunni að það vanti nánast ekki neitt. Bíllinn er með flottar innréttingar og er eins og hugur manns í akstri.“

Jóhannes Reykdal – bilablogg.is

Skoða umfjöllun

„Frábærlega vel búinn bíll með ógnarmikið rými, hlaðinn búnaði og með flotta innréttingu.“

Finnur Thorlacius – Fréttablaðið

Skoða umfjöllun

„Bílinn var svo skemmtilegur að litli rúnturinn endaði í tæpum 300 km.“

Hjörtur L. Jónsson – Bændablaðið

Skoða umfjöllun

SsangYong REXTON er jeppi ársins!

Mikil eftirvænting ríkti þegar eitt virtasta fagrit bílamarkaðarins, 4×4 Magazine, tilkynnti sigurvegarann í flokki fjórhjóladrifinna jeppa í valinu um bíl ársins.
Samkeppnin í þessum flokki hefur aldrei verið jafn hörð og margir voru tilnefndir, m.a. Toyota Land Cruiser, Mercedes Benz G-Class, Mitsubishi Pajero, Jeep Wrangler og Skoda Kodiaq.
Niðurstaða dómnefndar, sem skipuð var bílagagnrýnendum hvaðanæva að úr Evrópu var hinsvegar skýr; SsangYong Rexton skarar framúr með hæstu einkunn bæði sem besti jeppinn og bestu kaupin, og hlaut því titilinn 4×4 Jeppi ársins.
Nú bjóðum við þér að kynnast Rexton, nýja 7 manna lúxusjeppanum frá SsangYong.

Hugsanlega velur þú hann líka sem bíl ársins fyrir þig.

Sjö sæti – má bjóða þér eitt?

Ekkert var til sparað við hönnun SsangYong Rexton, enda markmiðið að búa til besta bílinn í sínum flokki. Og það tókst! Nýr Rexton er öruggari, rúmbetri og fallegri en nokkru sinni fyrr.
Einstaklega vel heppnuð innrétting tryggir að allir farþegar njóta ferðalagsins hvar sem þeir sitja. Sætin eru 7 og í leðurútgáfu bílsins eru þau öll klædd mjúku Nappa-leðri sem fæst í mismunandi litum. Hiti er í tveimur fremri sætaröðum, en fremstu sætin eru jafnframt búin loftkælingu.

Panta reynsluakstur

„Klárlega sigurvegari í sínum flokki.“

The Guardian

„Sópar samkeppninni til hliðar“

Automotive World

„Hörku samkeppni – Rexton sigraði“

4×4 Magazine

„Yfirdrifið pláss er fyrir ökumann og farþega og yfirbragðið og efnisval innandyra allt eins og í mun dýrara farartæki“

Morgunblaðið

„…það sem kom mest á óvart var lítið veghljóð inni í bílnum á 90 km hraða.“

Bændablaðið

„Nýi Rexton jeppinn er stórt skref fram á við fyrir SsangYong. Falleg hönnun, þéttur og þægilegur í akstri og mikill togkraftur. Bíllinn getur tekist á við ófærur sem tvisvar sinnum dýrari jeppar frá þekktum framleiðendum myndu stöðva við.“

Automotive Blog UK

Kraftmikill, lipur og klár

Með mikilli dráttar- og drifgetu ásamt fallegri hönnun bæði að utan og innan sameinar SsangYong Rexton kosti vinnuþjarksins og borgarbílsins betur en nokkur annar. Hvort sem skjótast þarf milli vinnu og skóla í dagsins önn eða út fyrir bæinn með stærstu gerð af kerru í eftirdragi leysir Rexton verkefnið af öryggi. Þú getur hvenær sem er skipt úr afturhjóladrifi yfir í fjórhjóladrif, hvort sem er hátt eða lágt, eftir aðstæðum. Með öflugri en sparneytinni diesel vél og sjálfskiptingu frá Mercedez Bens er dráttargetan heil þrjú tonn, sú mesta í þessum flokki jeppa.

Sterkur og öruggur

Rexton er einn fárra jeppa í dag sem byggður er á grind, með læstum millikassa og lágu drifi. Hann er hlaðinn vandaðasta tæknibúnaði og þægindum sem láta mun dýrari jeppa blikna í samanburði. „Quad Frame“ grindin minnkar hljóð bæði frá vegi og vélarrúmi. Hún er hönnuð með það í huga að auka öryggi farþega við árekstur.

Fjórar myndavélar á bílnum gera ökumanni auðveldara að athafna sig hvort sem verið er að leggja bílnum í stæði eða bakka kerru að sumarbústaðnum. Hliðarspeglar aðlaga sig sjálfkrafa að breyttri akstursstefnu ef bíllinn er settur í bakkgír, til að bæta enn frekar útsýni ökumanns. Níu loftpúðar og ytra byrði sem búið er sérstaklega hertu stáli hámarkar öryggi bæði ökumanns og farþega.

„5 stjörnur af 5 mögulegum. Hvernig kæmi nokkuð annað til greina? Á tiltölulega stuttum akstri varð ég yfir mig hrifinn af hve góður bíllinn er og hversu gríðarlegar framfarir hafa orðið í hönnun og gæðum hjá SsangYong. Um leið og maður opnar dyrnar gerbreytir Rexton þeirri ímynd sem maður hafði af SsangYong. Eftir meira en 25 ár í þessu starfi er ennþá eitthvað sem kemur manni á óvart. Meira svona!“

The Sentinel

„SsangYong hefur bætt Rexton jeppann að því marki að hann kemur skemmtilega á óvart, sérstaklega þegar komið er inn í bílinn. Bíllinn skorar einnig hátt þegar kemur að staðalbúnaði, ekki síst öryggisbúnaði.“

The Car Expert

„Það kemur skemmtilega á óvart hversu góður nýji Rexton jeppinn er. Samspilið af búnaði, hönnun, notagildi og framleiðslugæðum er ekkert annað en magnað; og væri það jafnvel þótt hann kostaði tvisvar til þrisvar sinnum meira. Samkeppnin um titilinn 4×4 Jeppi ársins var harðari í ár en nokkru sinni fyrr, og það segir sitt að Rexton hafi unnið þann titil.“

4×4 Magazine

Myndagallerý

Litir

Silky White Pearl Space Black Fine Silver Elemental Grey Grand White Atlantic Blue Sabia Beige

Myndbönd

Loading...

Tækniupplýsingar og staðalbúnaður

Staðalbúnaður

• Bíll byggður á grind
• 7 manna
• 5 ára ábyrgð
• Ergonomic heilsusæti
• Millikassi með læsingu og lágu drifi
• Margmiðlunarkerfi
─ 8″litaskjár
─ Bluetooth tenging við farsíma
─ Android Auto / Apple CarPlay
─ AM-FM útvarp (DAB og RDS)
─ Bakkmyndavél
─ 6 hátalarar
• 220 Volta rafmagnstengi
• 17″ álfelgur
• Styrktarbitar í hurðum, hliðum og þaki
• Vökvafylltir mótorpúðar sem minnka titring og hljóð í vél.
• Þéttilistar undir hurðum (halda sílsum hreinum)
• Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
• USB tengi
• Sjálfvirkur birtustillir í baksýnisspegli
• Tvískipt, tölvustýrð, loftkæling
• Loftsíur sem fjarlægja mengun og lykt
• Óbein birta í farþegarými
• Hraðastillir (Cruise Control)
• Leðurklætt aðgerðastýri
• Hæðarstillanlegt og aðdraganlegt stýri
• Hiti í framrúðum undir rúðuþurrkum
• Regnskynjari fyrir rúðuþurrkur
• Sjálfvirkur ljósabúnaður
• LED ljós, framan og aftan
• Þokuljós, framan og aftan
• Vindskeið að aftan með LED bremsuljósi
• Samlitaðir speglar og handföng
• Aftursæti fellanleg 60/40
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Rafdrifnar rúður í fram- og afturhurðum
• Rafdrifnir hliðarspeglar með hita og LED
• Rafaðfellanlegir hliðarspeglar
• Ljós undir hliðarspeglum
• Þjófavörn
• Krómlistar
• Langbogar á þaki
• Gólfmottur
• ABS hemlakerfi
• ESP stöðugleikastýring
• HDC, heldur á móti niður brekku
• ARP veltivörn
• AEBS sjálfvirk neyðarhemlun
• LDWS akreinavari
• HBA sjálfvirk stýring á háu ljósum
• TSR umferðamerkjaaðstoð
• FCWS árekstrarviðvörun
• ISOFIX festingar fyrir barnastóla
• Loftþrýsingsnemar í dekkjum

Staðalbúnaður

• Bíll byggður á grind
• 7 manna
• 5 ára ábyrgð
• Millikassi með læsingu og lágu drifi
• 7 þrepa sjálfskipting
• Ergonomic heilsusæti
• Sjálfstæð fjöðrun að aftan
• Margmiðlunarkerfi
─ 9,2″ litaskjár
─ Bluetooth tenging við farsíma
─ Android Auto / Apple CarPlay
─ AM-FM útvarp (DAB og RDS)
─ Bakkmyndavél
─ Leiðsögukerfi
─ 6 hátalarar
• 7” upplýsingalitaskjár í mælaborði
• 220 Volta rafmagnstengi
• Hiti í stýri
• 9 loftpúðar: Í stýri, farþegamegin, í hliðum og sem hnépúði fyrir ökumann
• 18″ álfelgur
• Styrktarbitar í hurðum, hliðum og þaki
• Vökvafylltir mótorpúðar sem minnka titring og hljóð í vél.
• Þéttilistar undir hurðum (halda sílsum hreinum)
• Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
• USB tengi
• Sjálfvirkur birtustillir í baksýnisspegli
• Tvískipt, tölvustýrð, loftkæling
• Loftsíur sem fjarlægja mengun og lykt
• Óbein birta í farþegarými
• Hraðastillir (Cruise Control)
• Leðurklætt aðgerðastýri
• Hæðarstillanlegt og aðdraganlegt stýri
• Hraðnæmt stýri
• Hiti í framrúðum undir rúðuþurrkum
• Regnskynjari fyrir rúðuþurrkur
• Sjálfvirkur ljósabúnaður
• LED ljós, framan og aftan
• Þokuljós, framan og aftan
• Vindskeið að aftan með LED bremsuljósi
• Samlitaðir speglar og handföng
• Aftursæti fellanleg 60/40
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Sólvörn í framrúðum
• Dökkt gler í afturrúðum
• Rafdrifnar rúður í fram- og afturhurðum
• Rafdrifnir hliðarspeglar með hita og LED
• Rafaðfellanlegir hliðarspeglar
• Ljós undir hliðarspeglum
• Þjófavörn
• Krómlistar
• Langbogar á þaki
• Gólfmottur
• ABS hemlakerfi
• ESP stöðugleikastýring
• HDC, heldur á móti niður brekku
• ARP veltivörn
• AEBS sjálfvirk neyðarhemlun
• LDWS akreinavari
• HBA sjálfvirk stýring á háu ljósum
• TSR umferðamerkjaaðstoð
• FCWS árekstrarviðvörun
• ISOFIX festingar fyrir barnastóla
• Loftþrýsingsnemar í dekkjum

Staðalbúnaður

• Bíll byggður á grind
• 7 manna
• 5 ára ábyrgð
• Ergonomic heilsusæti
• Millikassi með læsingu og lágu drifi
• 7 þrepa sjálfskipting
• Sjálfstæð fjöðrun að aftan
• 360° umhverfismyndavél
• Margmiðlunarkerfi
─ 9,2″ litaskjár
─ Bluetooth tenging við farsíma
─ Android Auto / Apple CarPlay
─ AM-FM útvarp (DAB og RDS)
─ Bakkmyndavél
─ Leiðsögukerfi
─ 6 hátalarar
• 7” upplýsingalitaskjár í mælaborði
• 220 Volta rafmagnstengi
• Hiti í stýri
• 9 loftpúðar: Í stýri, farþegamegin, í hliðum og sem hnépúði fyrir ökumann
• Leðurinnrétting. Stungið Nappa leður
• Kæling í framsætum
• 20″ álfelgur
• Beygjuljós
• Sóllúga
• Sjálfvirk rafmagnsopnun á afturhlera
• Lyklalaust aðgengi, ræsihnappur og sjálfvirk læsing
• Rafstýrð framsæti
• Stillingarminni í ökumannssæti
• Rafstýrður mjóbaksstuðningur í ökumannssæti
• Hiti í fram- og aftursætum
• HID háskerpu aðalljós
• LED þokuljós
• BSD blindpunkts viðvörun í hliðarspeglum
• RCTA varúðarskynjun vegna umferðar fyrir aftan bifreið
• LCA aðstoð við skipti milli akreina
• Styrktarbitar í hurðum, hliðum og þaki
• Vökvafylltir mótorpúðar sem minnka titring og hljóð í vél.
• Þéttilistar undir hurðum (halda sílsum hreinum)
• Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
• USB tengi
• Sjálfvirkur birtustillir í baksýnisspegli
• Tvískipt, tölvustýrð, loftkæling
• Loftsíur sem fjarlægja mengun og lykt
• Óbein birta í farþegarými
• Ökumannssæti með aðgengisaðstoð
• Hraðastillir (Cruise Control)
• Leðurklætt aðgerðastýri
• Hæðarstillanlegt og aðdraganlegt stýri
• Hraðnæmt stýri
• Hiti í framrúðum undir rúðuþurrkum
• Regnskynjari fyrir rúðuþurrkur
• Sjálfvirkur ljósabúnaður
• LED ljós, framan og aftan
• Þokuljós, framan og aftan
• Vindskeið að aftan með LED bremsuljósi
• Samlitaðir speglar og handföng
• Aftursæti fellanleg 60/40
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Sólvörn í framrúðum
• Dökkt gler í afturrúðum
• Rafdrifnar rúður í fram- og afturhurðum
• Rafdrifnir hliðarspeglar með hita og LED
• Rafaðfellanlegir hliðarspeglar
• Ljós undir hliðarspeglum
• Þjófavörn
• Krómlistar
• Langbogar á þaki
• Gólfmottur
• ABS hemlakerfi
• ESP stöðugleikastýring
• HDC, heldur á móti niður brekku
• ARP veltivörn
• AEBS sjálfvirk neyðarhemlun
• LDWS akreinavari
• HBA sjálfvirk stýring á háu ljósum
• TSR umferðamerkjaaðstoð
• FCWS árekstrarviðvörun
• ISOFIX festingar fyrir barnastóla
• Loftþrýsingsnemar í dekkjum

Sækja verðlista
Ábyrgðarskilmálar

Vertu velkomin(n) í reynsluakstur, söluráðgjafar okkar taka vel á móti þér.